<$BlogRSDUrl$>

20. mars 2007

Mín Gæsuð!! 

Ég hóf laugardagsmorgunin í rólegheitum og ætlaði að taka til í geymslunni seinna um daginn. Við hjónaleysin fengum okkur morgunmat, lásum blöðin osfr. Fórum niður í geymslu um hádegi og mín var byrjuð að telja flöskur þegar tveir kúrekar ásamt myndatökumanni stálu mér í gæsun. Það var keyrt með mig svaka krókaleið niður á Nordica þar sem beið mín dýrindis nudd hjá nöfnu minni, takk æðislega Elín!! Síðan beið mín kúrekadress sem ég átti að klæða mig í. Þaðan var leiðinni áfram haldið upp í hesthúsahverfi þar sem ég átti að járna hest og fara á bak. Þetta var hinsvegar alltsaman í gamni gert og eftir túr niður laugarvegin, þar sem mín fór um á dótahestinum Grana var endað á Hressó. Þar tóku allar stelpurnar á móti mér i bröns og ég látin syngja uppáhalds karókí lagið mitt ásamt Pétri, takk fyrir það Pétur. Loks var kíkt við í kolaportinu, dorgað í höfninni og farið í línudans upp í Breiðholti með Hjördísi, takk Hjördís. Síðan fékk ég að fara heim í sparifötin til þess að verða sótt klukkutíma seinna. Þá enduðum við á Hereford steikhúsi, borðuðum 3.ja rétta máltíð ásamt eftirminnilegum eftirrétti. Þetta endaði alltsaman í singstarpartýi hjá Eyrúnu og gæsinni skilað heilli heim ásamt farþeganum þegar klukkan var um 3 um nótt. Takk fyrir farið Elín og Ægir!!

16. mars 2007

Nóg að gera 


Sæl öllsömul, langt síðan ég hef bloggað fyrir hönd Álftamýarbúa. Búið að vera nóg að gera. Eins og flestir vita eigum við hjónin von á barni nú í sumar og er okkur barasta farið að hlakka til. Einnig er nóg að gera í vinnu og pólitík þessa daganna. Fyrir þá sem ekki vita það þá er mín í framboði til Alþingis og skipa ég 7. sæti í Reykjavík-suður fyrir vinstri-græn. Þetta verður bara skemmtileg reynsla og gaman að takast á við þetta. Það fylgir þessu ýmislegt skemmtilegt eins og að fá að fara í "professional" myndatöku hjá ljósmyndara og set ég afraksturinn nú á bloggið!! Annars verður nóg að gera um helgina, áætlað að taka til í geymslu, fara í hvítvínsklúbb (-hvítvínið fyrir mig). Halli að spila á Aroma annað kvöld og svo á að reyna að skrifa grein í blöðin þannig að helgin verður sennilega fljót að líða.

Lag dagsins er Gakktu í Reyklausa liðið sem var að finna á plötunni Burtu með reykinn!! forðum daga.

Pirr dagsins og sennilega næstu mánuði er að passa ekki í neitt af fötunum sínum!!!

2. mars 2007

Orðlaus 

Fletti í Blaðinu í morgun og rakst þar á 5 spurningar, lið sem fellur undir hluta blaðsins á föstudögum, Orðlaus. Þar er grandalausum ungmennum stillt upp við vegg og þau beðin um að svara 5 spurningum almenns eðlis. Og alltaf finnst mér þetta jafnsorglegt, viku eftir viku:

"Hver er höfuðborg Finnlands?" - "Stokkhólmur" svaraði 21 árs stúlka.
"Hvað eru heimsálfurnar margar?" "3 eða 4" segir 15 ára stúlka.
"Hvað heitir Englandsdrotting?" "Veit ekki" sögðu tveir aðspurðra...


Ein stúlkukind svaraði ekki einni einustu spurningu - "Veit ekki" var svarið við öllum fimm...Og svona birtist þetta viku eftir viku. Það liggur við að maður klippi þetta út og fari yfir statusinn að ári. Oftast er hreinlega pínlegt að fylgjast með krakkagreyjunum þar sem þeir svara út í hött eða alls ekki. Mig fer að gruna að blaðamenn velji út þá fáfróðu til að koma áleiðis e-m undirliggjandi skilaboðum. Ég neita að trúa því að þessi dálkur sýni rétta mynd af kunnáttu unga fólksins. Ef svo er þá hjálpi okkur Guð, Allah og Óðinn, saman eða í sitthvoru lagi...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?